Pétur Fjeldsted Einarsson

Um mig

Ég hef stundað ljósmyndun í nokkra áratugi en undanfarin 10 ár hef ég unnið markvisst í því að bæta þekkingu og færni til þess að ná góðum tökum á fjölbreyttum tegundum ljósmyndunar.

Árin 2012-13 stundaði ég nám við Elite Fashion Academy þar sem áhersla var lögð á portrait og tískuljósmyndun. Námið byggði á samvinnu deilda á sviði stílista, hárgreiðslu, förðunar, fyrirsæta og ljósmyndara. Ég vann þar mörg og fjölbreytt verkefni og hefur sú reynsla nýst vel.

Í kjölfarið ákvað ég að kanna hvort ég gæti nálgast ljósmyndun fyrir viðburði á sviði, eins og tónleika, með svipuðum formerkjum og tískumyndatöku í stúdíó. Það hefur gengið vel og hef ég að mestu verið að sinna ljósmyndun á þessum sviðum undanfarin ár, nær eingöngu sem áhugamál.

Close Menu